Færslur: 2007 Mars
27.03.2007 20:34
Stór strákur
Sæl,
Ég vil byrja á því að nefna það að hann Birkir minn á stórafmæli í dag, tvítugur kallinn. Til hamingju með það ástin mín
Hann er svo heppinn að fá golfskó frá mér, þá getur hann klárað að kenna mér golf í sumar

Það er alveg hellingur að gera hjá mér þessa dagana, böns af prófum og ritgerð. Ég vaki alltaf langt fram á nætur til að læra! Get ekki beðið eftir páskafríinu, hlakka svo til að kúra og hafa það notalegt ...
Ég fór og lét sjæna hárið á mér til í dag, klipping og strípur. Svo fer ég í plokkun, litun og slípun á fimmtudagin.. Maður verður nú að vera sómasamlegur á Páskunum
Annars er bara reykjavík framundan og svo páskarnir!!

Skrifað af Lindu
19.03.2007 19:19
Komin heim
Halló, halló..
Jæja, þá er ég komin heim að sunnan. Kom með seinna fluginu í dag ásamt Salóme sem var skilin eftir alein með trommusett og allan fjandan sem hún átti að koma með vestur fyrir Kristinn sinn
En það var yndislegt hjá honum Birki mínum, við höfðum það ótrúlega notalegt saman um helgina. Ég var þó búin að ákveða það að kaupa ekki nokkurn skapaðan hlut í þessari ferð en endaði auðvita uppi með tvo kjóla í BÚÐAGLUGGA-FERÐ okkar Birkis og Salóme í kringlunni
Ég held ég hafi borðað einn subway á dag á þessari dvöl minni í Reykjavík!! Ég er algjörlega sjúk í þetta, og ekki bara það... Alveg síðan ég smakkaði Subway fyrst hef ég alltaf fengið mér það sama á hann
Við skelltum okkur í bíó á laugardagskvöldið, á Norbit. Hún var skemmtileg, vorum þó bæði sammála um það að sú feita var orðin dálítið þreytt í endan...
Planið er að fara suður aftur 30. mars og halda upp á tvítugsafmælið hans Birkis, ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman. Keyrum svo líklega vestur 4. eða 5. apríl. Birkir fær ekki frí hjá FH fyrr en þá
Svo er það Grey's Anatomy, Crossing Jordan, C.S.I og Heroes í kvöld!! Nóg að gera bara
Jæja, þá er ég komin heim að sunnan. Kom með seinna fluginu í dag ásamt Salóme sem var skilin eftir alein með trommusett og allan fjandan sem hún átti að koma með vestur fyrir Kristinn sinn
En það var yndislegt hjá honum Birki mínum, við höfðum það ótrúlega notalegt saman um helgina. Ég var þó búin að ákveða það að kaupa ekki nokkurn skapaðan hlut í þessari ferð en endaði auðvita uppi með tvo kjóla í BÚÐAGLUGGA-FERÐ okkar Birkis og Salóme í kringlunni
Ég held ég hafi borðað einn subway á dag á þessari dvöl minni í Reykjavík!! Ég er algjörlega sjúk í þetta, og ekki bara það... Alveg síðan ég smakkaði Subway fyrst hef ég alltaf fengið mér það sama á hann
Við skelltum okkur í bíó á laugardagskvöldið, á Norbit. Hún var skemmtileg, vorum þó bæði sammála um það að sú feita var orðin dálítið þreytt í endan... Planið er að fara suður aftur 30. mars og halda upp á tvítugsafmælið hans Birkis, ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman. Keyrum svo líklega vestur 4. eða 5. apríl. Birkir fær ekki frí hjá FH fyrr en þá

Svo er það Grey's Anatomy, Crossing Jordan, C.S.I og Heroes í kvöld!! Nóg að gera bara

Skrifað af Lindu
07.03.2007 16:01
Kiss Kiss ..
Já, það er óhætt að segja það að hann Birkir hafi komið um helgina
Ég fékk tvær stórar frunsur...Takk fyrir pent!!!!!!!
Ég fékk tvær stórar frunsur...Takk fyrir pent!!!!!!!
Skrifað af Lindu
04.03.2007 17:38
Óvænt helgi
Hæ,
ætla bara að henda inn nokkrum línum til að láta vita af mér ..
Það er svosem ekkert að frétta af mér, búin að vera í hlutaprófum núna seinustu daga og vinna. Ég fékk e-a flensu um daginn, var veik og slöpp í rúma viku.
Á föstudaginn var ég að syngja á miðvetrartónleikum tónlistarskólans, söng tvö lög. Eftir tónleikana hringdi Birkir í mig og sagði mér að hringja í sig um leið og ég kæmi heim, hann væri með frábærar fréttir. Þegar ég kom heim fór ég beint niður og ætlaði að hringja, hver haldiði að labbi ekki á móti mér úr herberginu í myrkrinu? .. Mér brá ekkert smá, það er svo gaman að fá svona óvænt
Við vorum neflilega ekki að fara að hittast fyrr en 16 mars útaf fótboltanum, en þetta reddaðist vegna þess að hann á ekki að fara að keppa fyrr en kl 19:00 í kvöld! Þetta var rosa ánægjulegt ....
Á laugardagskvöldið kíktum við í afmæli til Denna og Dóra Skarp, Birkir var ekkert sérstaklega spenntur en ég dró hann út! Fórum ekki í afmælið fyrr en hálf tólf og fórum frekar snemma, þegar Birkir var búin að biðja mig svona 5x um að fara lét ég undan og við fórum heim!
Í kvöld eru Bubba tónleikar, ég veit ekki hvort ég fer á þá en ég ætla alllavega pottþétt að skella mér á miðilsfundinn á morgun.....
Kveðja,
Linda Rut
ætla bara að henda inn nokkrum línum til að láta vita af mér ..

Það er svosem ekkert að frétta af mér, búin að vera í hlutaprófum núna seinustu daga og vinna. Ég fékk e-a flensu um daginn, var veik og slöpp í rúma viku.
Á föstudaginn var ég að syngja á miðvetrartónleikum tónlistarskólans, söng tvö lög. Eftir tónleikana hringdi Birkir í mig og sagði mér að hringja í sig um leið og ég kæmi heim, hann væri með frábærar fréttir. Þegar ég kom heim fór ég beint niður og ætlaði að hringja, hver haldiði að labbi ekki á móti mér úr herberginu í myrkrinu? .. Mér brá ekkert smá, það er svo gaman að fá svona óvænt
Við vorum neflilega ekki að fara að hittast fyrr en 16 mars útaf fótboltanum, en þetta reddaðist vegna þess að hann á ekki að fara að keppa fyrr en kl 19:00 í kvöld! Þetta var rosa ánægjulegt ....Á laugardagskvöldið kíktum við í afmæli til Denna og Dóra Skarp, Birkir var ekkert sérstaklega spenntur en ég dró hann út! Fórum ekki í afmælið fyrr en hálf tólf og fórum frekar snemma, þegar Birkir var búin að biðja mig svona 5x um að fara lét ég undan og við fórum heim!

Í kvöld eru Bubba tónleikar, ég veit ekki hvort ég fer á þá en ég ætla alllavega pottþétt að skella mér á miðilsfundinn á morgun.....

Kveðja,
Linda Rut
- 1
Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 34136
Samtals gestir: 15715
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:01:02